Erlent

Opinn fyrirlestur hjá ÍE

Í dag mun Dr. Octavi Quintana Trias, yfirmaður heilsurannsóknarsviðs Evrópusambandsins, halda opinn fyrirlestur um evrópskar heilsurannsóknir í fyrirlestrasal Íslenskrar erfðagreiningar að Sturlugötu 8 kl. 16.30. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku.

Trias hefur í fimm ár stjórnað þeirri skrifstofu Evrópusambandsins sem hefur umsjón með rammaáætlunum á sviði heilsurannsókna en á árunum 2007-2013 er áformað að verja um sex milljörðum evra í slíkar rannsóknir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×