Menning

Bragi í Ameríku

Bragi Ólafsson skáld.
Bragi Ólafsson skáld.

Edda útgáfa hefur gert samning við forlagið Open Letter í Bandaríkjunum um útgáfu á Gæludýrunum eftir Braga Ólafsson. Kemur sagan út þar haustið 2008. Open Letter, sem er nýtt forlag í eigu Rochester- háskóla, gefur út þýddar samtímabókmenntir fyrir hinn enskumælandi heim.

Gæludýrin er grátbrosleg frásögn af ótímabærum endurfundum tveggja ungra manna sem eiga fátt sameiginlegt annað en það að vera Íslendingar. Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2001 og Menningarverðlauna DV, og er komin út í Danmörku og Þýskalandi. Er þessi áfangi merkilegur fyrir Braga sem er orðinn vinsæll höfundur og hefur að auki sent frá sér ljóðasöfn og leikrit.

Danska forlagið Athene mun gefa út nýjustu skáldsögu Braga, Sendiherrann, en hún var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í fyrra. Athene er hluti Aschehoug í Danmörku sem er í eigu Egmont og kemur sagan út snemma á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.