Bíó og sjónvarp

Remba í Reykjavík

Vanir menn
Vanir menn

Gamanleikurinn Remba sem hefur glatt geð manna á Laugum í Reykjadal nú um nokkurt skeið verður sýndur af leikflokknum Vönum mönnum í Reykjavík föstudags- og laugardagskvöld og er enn einhver von um að fá megi miða á sýninguna á Cafe Rósenberg í Reykjavík.

Þetta er ríflega klukkustundarskemmtun með stuttu hléi sem hefur gengið vel nyrðra: sautján sýningarkvöld eru að baki og hafa um þúsund leikhúsgestir séð verkið í Laugabæ. Fullt er búið að vera á allar sýningar og biðlisti á flestar. Matur var í boði með hverri sýningu í Laugabæ: lambalæri og meðlæti, og hafa þrjú hundruð læri horfið oní leikhúsgesti til þessa. Leikarar í Vönum mönnum eru reynsluboltar úr leikfélögum Leikfélags Húsavíkur og Leikdeildar Eflingar í Reykjadal.Höfundur verksins er Hörður Þór Benónýsson. Hópurinn sjálfur leikstýrir. Hafa Vanir menn fengið fyrirspurnir frá ýmsum stöðum s.s. Vopnafirði, Ísafirði og víðar um að koma með stykkið til sýningar. Miðapöntun er hjá þeim Rósenbergs-mönnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×