Bíó og sjónvarp

Píkusögur í öllum fjórðungum

Ólöf Arnalds
Ólöf Arnalds

V-dagurinn verður haldinn hátíðlegur í sjötta skipti hér á landi 15.-18. mars. Að þessu sinni verður dagskrá í tilefni dagsins í hverjum landsfjórðungi en á Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði og Selfossi munu athafnakonur á hverjum stað taka þátt í flutningi á leikriti Eve Ensler, Píkusögum.

Bæjarstjórar, forsetar bæjarstjórnar og prestur verða meðal þátttakenda ásamt þjóðþekktum leikkonum í dagskránni en aukinheldur munu tónlistarkonurnar Lay Low, Ragnhildur Gísladóttir og Ólöf Arnalds koma fram á V-deginum og deila með sér uppákomunum fjórum.

Í kvöld verður dagskrá í Samkomuhúsinu á Akureyri þar sem bæjarstjórinn Sigrún Björk Jakobsdóttir kemur fram ásamt leikkonunum Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur og Sunnu Borg og sr. Solveigu Láru Guðmundsdóttur, sóknarpresti á Möðruvöllum. Á Egilsstöðum á föstudag stígur Ilmur Kristjánsdóttir á svið ásamt stöllu sinni Mörtu Nordal en þeim til fulltingis verður Helga Jónsdóttir, bæjarstjóri Fjarðarbyggðar, og Soffía Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs.

 

Sigrún Björk Jakobsdóttir

Soffía Vagnsdóttir og Birna Lárusdóttir, forsetar bæjarstjórnar Bolungarvíkur og Ísafjarðar, láta ekki sitt eftir liggja og flytja Píkusögur í Félagsheimilinu á Hnífsdal ásamt leikkonunum Sigrúnu Eddu Björnsdóttur og Helgu Völu Helgadóttur á laugardagskvöld.

Dagskránni lýkur svo á Hótel Selfossi á sunnudagskvöld þar sem Arnbjörg Hlíf Valsdóttir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir koma fram ásamt Ragnheiði Hergeirsdóttur, bæjarstjóra Árborgar, og Kristínu Hrefnu Halldórsdóttur stjórnmálafræðinema.

V-dagurinn er haldinn af samnefndum samtökum víðs vegar í heiminum. Samtökin voru stofnuð árið 1998 en markmið þeirra er að binda endi á ofbeldi gegn konum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.