Bíó og sjónvarp

Lecter finnur til lystar sinnar

Hinn franski Gaspard Ulliel fetar í fótspor Anthony Hopkins og fer með hlutverk Lecters.
Hinn franski Gaspard Ulliel fetar í fótspor Anthony Hopkins og fer með hlutverk Lecters.

Siðfágaðasta mannæta fyrr og síðar, dr. Hannibal Lecter, mætir í kvikmyndahús hér á landi annað kvöld þegar Hannibal Rising verður frumsýnd.

Að þessu sinni er ljósinu brugðið á uppvaxtarár Lecters í Litháen og hvaða atburðir leiddu til þess hann breyttist smám saman í blóðþyrsta ófreskju.

Myndin hefst í lok seinni heimsstyrjaldar, þegar Hannibal er enn á barnsaldri. Hann horfir upp á nasista murka lífið úr foreldrum sínum en kemst sjálfur lífs af ásamt systur sinni, sem síðar mætir örlögum sínum á hinn hryllilegasta máta. Lecter elst upp á munaðarleysingjahæli en flýr til Parísar á unglingsaldri í leit að frænda sínum. Sá reynist látinn en ekkja hans tekur vel á móti Hannibal. Hann reynist vera fluggreindur og kemst inn í læknaskóla og safnar þar þekkingu sem hann notar til að ná sér niðri á þeim sem myrtu fjölskyldu hans.

Anthony Hopkins, sem hingað til hefur túlkað Lecter (fyrir utan kvikmyndina Manhunter þar sem Brian Cox lék hann), er fjarri góðu gamni en aðalhlutverkið er í höndum hins franska Gaspard Ulliel, sem er þekktastur fyrir að leika unnusta Audrey Tatou í Un long dimanche de fiançailles (Trúlofunin langa). Eins og hinar fyrri byggir myndin á bók Thomasar Harris, en hann skrifaði kvikmyndahandritið með fram bókinni, sem kom út í ársbyrjun. Leikstjóri er Peter Webber, sem hlaut mikið lof fyrir síðustu mynd sína, The Girl With a Pearl Earring.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.