Tónlist

Stormsker á Asíumarkað

Syngur tregablandna ástarsöngva, sem samdir eru víðsvegar um Asíu, á nýrri plötu: „There is only one“.
Syngur tregablandna ástarsöngva, sem samdir eru víðsvegar um Asíu, á nýrri plötu: „There is only one“.

„Þessi plata er ekkert endilega hugsuð fyrir íslenskan markað. Ég hef verið í viðræðum við eitt af stærstu kompaníum í Bangkok og vel inni í myndinni að hún komi út um alla Asíu á næsta ári.

Jájá, nóg að gera á stóru heimili,” segir tónlistarmaðurinn Sverrir Stormsker drjúgur með sig.

Sverrir hefur lagt lokahönd á sína nýjustu plötu sem heitir “There is only one” og er hún væntanleg í allar betri plötubúðir á næstunni. Heiti plötunnar er ekki vísun í Highlander-myndina og hin eftirminnilegu ummæli „There can be only one!” Né heldur er um gorgeir í Stormskerinu að ræða heldur er heitið tilvísun í stelpu nokkra sem Sverrir hitti þegar þau voru sjö ára gömul bæði tvö. Platan er öll til hennar.

Hinn sérstæði tónlistarmaður hefur á undanförnum mánuðum dvalið langdvölum víðs vegar um Asíu og platan er öll tekin upp í Bangkok. Með fulltingi tónlistarmanna sem þar dvöldu þá við störf og leik.

„Á plötunni er til dæmis ein söngkona sem heitir Myra, Tæ-Filippeysk-Kínverk og er alveg útrúlega lunkin. Hún syngur með þeim hætti að aðeins er á færi fimm til sex söngkvenna í heimi. Annar er söngvari sem kemur við sögu og heitir Gregory Carol sem hefur sungið með Santana og Robert Palmer. Upptökumaðurinn hefur starfað með gommu heimsþekktra tónlistarmanna á borð við Diönnu Ross, Bobby Brown og Rolling Stones. Hann heitir Ron Zelst og selst vel.”

Sverrir segir þetta mika atvinnumenn sem starfa í Bangkok en á hinni nýju plötu er sungið á ensku. 12 lög flutt á 73 mínútum. “Fólk fær mikið fyrir peninginn. Þetta eru svona... tregablandnir ástarsöngvar sem samdir eru víðsvegar um Asíu.”






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.