Bíó og sjónvarp

Sannar og brenglaðar myndir af okkur

Danssmiðja Íslenska dansflokksins er tilraunastöð fyrir unga danshöfunda þar sem þeim gefst tækifæri til að sýna verk í vinnslu, æfa tækni sína og þroska sköpunargáfu. Því eru sýningar danssmiðjunnar meira í ætt við gjörninga eða tilraunir, en ekki fullmótuð verk.

Dansarinn Steve Lorenz gekk til liðs við Íslenska dansflokkinn árið 2002 sem gestanemandi en nýtt verk eftir hann, Images, verður frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins annað kvöld. Haustið 2003 var hann síðan fastráðinn sem dansari hjá Íslenska dansflokknum. Steve nam nútímadans við dansakademíuna í Rotterdam en hefur einnig lokið íþróttakennaranámi og stundað og keppt í karate.

Viðfangsefni verksins eru þær myndir sem við sjáum af heiminum á degi hverjum, til dæmis gegnum fjölmiðla. Sannar og falsaðar myndir af því hvernig við lifum, hvernig heimurinn breytist. Steve spyr þannig hvort þróun mannskepnunnar miði sífellt að frekari þroska og gáfum eða hvort maðurinn sé í raun og veru svo klár. „Sagan sannar að mennirnir hafa aldrei getað búið friðsællega saman né heldur í friðsæld við náttúruna.“

Dansarar og meðhöfundar verksins eru Damian Michael Gmur, Aðalheiður Halldórsdóttir, Hjördís Lilja Örnólfsdóttir, Emilía Benedikta Gísladóttir og Cameron Corbett.

Verkið verður frumsýnt kl. 20 annað kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.