Bíó og sjónvarp

Dansmynd á toppinn

Dansmyndin fór beint á topp bandaríska aðsóknarlistans.
Dansmyndin fór beint á topp bandaríska aðsóknarlistans.

Dansmyndin Stomp the Yard fór beint á topp bandaríska aðsóknarlistans um síðustu helgi. Þar með lauk sigurgöngu myndar Ben Stiller, Night at the Museum, sem hafði setið í þrjár vikur á toppnum.

Stomp the Yard kostaði „einungis“ 1,1 milljarð í framleiðslu en tók inn rúma 1,5 milljarða í miðasölunni. Myndin fjallar um hæfileikaríkan dansara sem tekur þátt í danskeppni til að vinna hjarta stúlku einnar.

Í þriðja sæti var myndin The Pursuit of Happyness með Will Smith í aðalhlutverki. Hefur Smith verið orðaður við Óskarsverðlaunin fyrir frammistöðu sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.