Bíó og sjónvarp

Stuttmyndir á netið

Ísold Uggadóttir leikstjóri er í keppni á Sundance með mynd sína Góða gesti.
Ísold Uggadóttir leikstjóri er í keppni á Sundance með mynd sína Góða gesti.

Á föstudag var tilkynnt að helmingur stuttmynda sem sýndar verða á Sundance-hátíðinni verði aðgengilegur á netinu í bás iTunes. Niðurhalið af iTunes gegn verði bætist við ókeypis strauminn á vefsíðu Sundance en opnað verður fyrir þær 18. janúar en þá hefst hátíðin.

Stuttmyndaúrvalið verður fáanlegt hjá Itunes næstu þrjú árin og sá sem kaupir stuttmynd þar og halar niður getur átt hana í afriti eins lengi og kaupandi lifir og meðan afritið endist.

Í fréttum vestanhafs horfa menn einkum á hlutaskiptingu af gjaldinu en þar af fær framleiðandi tæpa tvo dali, Sundance, Apple skipta restinni. Salan takmarkar ekki frekari dreifingu vestanhafs sem er enn eitt merki þess að einkasölufyrirbærið vestanhafs sé að veikjast.

Stuttmyndir hafa verið streymandi á vef Sundance um nokkurt skeið og milljónir sækja á vefinn til að skoða þær. Þetta eru bæði heimildamyndir, leiknar og hreinni í formi. Ekki eru uppi áætlanir um að Sundance taki að dreifa kvikmyndum en þegar stendur Sundance fyrir sjónvarpsrás.

Apple átti í vikunni stórleik með nýju símatæki sem er runnið við ipodinn. Nú aukast líkur á að allt renni frekar saman.

Þegar er með lúsarleit á Itunes hægt að finna ótrúlega hluti. Þar er til dæmis aðgengilegasta úrval af óperusöng og listdansi sem fáanlegt er. Fari stuttmyndir á kreik eru líkur á að þær taki líka að fljóta um heima netsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.