Bíó og sjónvarp

Talsett og döbbuð

Leikstjórinn Lepage nýtir sér alla möguleika talfæranna.
Leikstjórinn Lepage nýtir sér alla möguleika talfæranna.

Lipsynch er heitið á nýrri sýningu kanadíska leikstjórans og leikhúsmannsins Robert Lepage. Þar fléttir hann sjö sögum saman í stóra myndræna heild og verður verkið flutt á vegum Ex Machina og Théâtre San Frontières í Newcastle í febrúar.

Þar blandar Lepage saman atvikum frá Vínarborg eftir stríðsárin, Niakarakva fyrir byltingu, Kanaríeyjum okkar tíma, Quebec, Þýskalandi og Bretlandi. Það eru níu leikarar sem flytja verkið og koma úr öllum heimsins hornum. Verkið hefur Lepage lagt með þeim.

Eins og í fyrri verkum hans býður Ex Machina upp á samruna margra listgreina, en leikflokkinn setti Lepaga á stofn með aðstoð og fjármagni kanadísku ríkisstjórnarinnar fyrir fáum árum. Var honum búin einstök aðstaða í Ottawa, ekki skortir þar fé til tilrauna og úrvinnslu. Þar sitja saman við borð leikhúsmenn og sérfræðingar á tæknisviðum: leikskáld og myndlistarmenn, og koma víða að. Þannig er Lipsynch búin til.

Lipsynch notfærir sér ýmis viðmót raddarinnar: talsetningu við hreyfðar varir, eftirátal, sjálfvirkar raddir og heim kvikmynda til að skoða og sýna mátt og máttleysi raddar í vestrænni menningu. Sýningar verða í Newcastle 19.-24. febrúar og er sýningin fjórar og hálf klukkustund í flutningi með hléum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.