Bíó og sjónvarp

Óperan blómstrar á Dokkeyju

Atriði úr sviðsetningunni á Lohengrin Wagners
Kongelige Teater
Atriði úr sviðsetningunni á Lohengrin Wagners Kongelige Teater mynd/Jörgen Landsman/Det

Óperuunnendur á Íslandi eiga styst með að skjótast erlendis til að njóta óperulistarinnar – í það minnsta þangað til Íslenska óperan setur Rake Progress eftir Stravinsky á svið 9. febrúar - Flagara í framsókn kalla þeir við Ingólfsstrætið verkið.

En vindi menn sér til Hafnar er nóg að sjá og flest ekki af verri endanum: hjá Konunglega leikhúsinu í Kaupmannahöfn eru stöðugt í gangi stórar óperusýningar í nýja óperuhúsinu þeirrra á Dokkeyju: Þar verður frumsýnd þann 14. janúar sviðsetning Peter Konwitschnys hins þýska á Lohengrin eftir Wagner. Sviðsetning hans hefur þegar verið flutt í Hamburg og Barcelona og sætt miklum deilum. Vettvangur sögunnar rómantísku er fluttur aftur úr miðöldum í skólastofu þar sem allt er sett upp í einföld og barnaleg átök krakka.

Og fleiri verk bíða byltingarkenndra sviðsetninga í nýja óperuhúsinu: sænski leikstjórinn Jasenko Selimovic setur Simon Boccanegra eftir Verdi á svið um miðjan mars. Jasenko Selimovic er Bosníumaður að uppruna og nýráðinn yfirmaður leiklistardeildar sænska hljóðvarpsins.

Titus eftir Mozart er á dagskrá í lok febrúar og einnig Palleas og Melisande eftir Debussy. Sagan er sótt í texta Maurice Maeterlinck hins belgíska og það er engin önnur en Anne Sofie von Otter sem syngur í verkinu ásamt hinni lofandi Elisabeth Jansson. Guy Joosten setur á svið en hann er eftirsóttur víða um álfur.

Meistarasöngvarar Wagners eru væntanleguir á svið 1. apríl og er það heimsókn frá Volksbuhne í Berlín. Til stóð að setja Le Grande Macabre á svið en í hennar stað kemur Leðurblakan 24. mars. Þá verður Lucia di Lammermoor sýnd i mai.

Upplýsingar um þessar sýningar og miðasala er aðgengileg á vef Konunglega leikhússins: www.kglteater.dk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.