Tónlist

Kylie ákaft fagnað

Er að ná fyrri styrk og hélt upp á nýja árið með aðdáendum sínum í Bretlandi.
Er að ná fyrri styrk og hélt upp á nýja árið með aðdáendum sínum í Bretlandi.

Hin smávaxna ástralska söngkona Kylie Minogue gat ekki hafið söng fyrir fagnaðarlátum áhorfenda sem ætlaði aldrei að linna þegar hún söng nýja árið í garð á Wembley Arena. Alls mættu tólf þúsund aðdáendur söngkonunnar og stóð Kylie klökk á sviðinu þegar þeir tóku á móti henni með þessum hætti.

„Ég elska ykkur öll og takk fyrir þann stuðning sem þið hafið sýnt í verki,“ sagði Minogue en hún greindist með brjóstakrabbamein í maí árið 2005 og hefur verið á fullu í endurhæfingu en hún hyggst endurvekja tónleikaferð sína Showgirls.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.