Innlent

Norðurljós og snjór heilla

Hundruð erlendra ferðamanna, frá öllum heimshornum, koma árlega hingað til lands í þeim tilgangi að vera hér yfir jólin. Frekar dauft er yfir höfuðborginni jóladagana og lítið um að vera fyrir útlendinga. Þó geta hlutir eins og snjór og norðurljós, gert gæfumuninn fyrir margan ferðamanninn.

Það var frekar tómlegt um að litast í höfuðborginni í dag og nánast öll verslun og þjónusta lokuð. Það sem helst var við að vera fyrir útlendinga voru ferðir í Bláa Lónið, Gullfoss og Geysi. Þá var eitthvað um hestaferðir og jeppaferðir fyrir utan höfuðborgina. Ástæður þess að fólk ákveður að dvelja á Íslandi yfir jólin eru afar mismunandi.

Dennis Eveleigh frá Englandi fór í Bláa Lónið í dag með konu sinni, hann segist velja lónið fram yfir að vera bara heima, horfa á sjónvarp og borða kalkún.

Stephen og Sonja Graham frá Birmingham í Bretlandi fara eitthvað um hver jól, en segja samanburðinn við Egyptaland í fyrra vera heitt, og kalt. Þeim finnst landslagið hér þó taka Egyptalandi fram og lýsa því sem stórkostlegu.

Mæðgurnar Camel og Sara Donohue eru alla leið frá Victoria í Ástralíu. Þær áttu ekki von á snjó, en voru himinlifandi að vakna upp við snjókomu.

Mæðgurnar hafa eytt jóladegi í að labba um bæinn og njóta þess að vera í snjónum.

Margir ferðamannanna biðu eftir ákvörðun um norðurljósaferð hjá Kynnisferðum í kvöld, og Stephen og Sonja ætla ekki að missa af þeirri henni ef af verður. Þau hafa aldrei séð norðurljós og segja það verða hápunkt ferðarinnar ef það tekst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×