Erlent

Ísraelar jafnvel að sleppa föngum

Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels.
Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels. MYND/AP

Ísraelski forsætisráðherrann, Ehud Olmert, gaf í skyn í dag að Ísraelar gætu sleppt nokkrum palestínskum föngum fyrir áramót þó svo að herskáir Palestínumenn hafi ekki sleppt ísraelskum hermanni sem þeir hafa í haldi í Gaza.

„Stund sveigjanleika og umburðarlyndis er nú og þess vegna gæti meira gerst en hefur áður." sagði Olmert á fundi ísraelsku ríkisstjórnarinnar í dag. Undanfarin ár hafa Ísraelar sleppt nokkrum föngum yfir hátíðarnar til þess að sýna göfuglyndi um jólin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×