Erlent

Maður ákærður fyrir fimm morð

Steven Wright.
Steven Wright. MYND/AP

Breskur maður, Steven Wright, var í dag ákærður fyrir morð á fimm vændiskonum í austurhluta Englands. Hann er grunaður um að hafa myrt þær á síðustu fimm vikum.

Morðin áttu sér stað í kringum hina rólegu borg Ipswich en líkin fundust í kringum hana með stuttu millibili. Rannsóknin er ein sú viðamesta sem breska lögreglan hefur verið með og er talið að allt að 600 lögreglumenn hafi starfað að málinu undanfarinn mánuð. Öðrum manni sem var haldið vegna morðanna hefur nú verið sleppt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×