Innlent

Vinna liggur enn niðri í Kárahnjúkagöngum

Vinna við steypusprautun í jarðgöngum í Kárahnjúkum liggur enn niðri eftir vinnuslys á laugardag en þá fyrirskipaði vinnueftirlit ríkisins úttekt á öryggismálum áður en framkvæmdir héldu áfram. Í dag fóru eftirlitsmenn stofnunarinnar á staðinn og tóku út verkferla, en allt öryggiskerfið á Kárahnjúkum er í endurskoðum. Samkvæmt upplýsingum fréttastofunnar mun vinna ekki hefjast í göngunum fyrr en framkvæmdaeftirlit Landsvirkjunar hefur samþykkt stöðuna auk vinnueftirlitsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×