Innlent

Bið á framboði

Frá fundi eldriborgara á Hótel Borg í dag.
Frá fundi eldriborgara á Hótel Borg í dag. MYND/Stöð2

Ekki náðist samkomulag um stofnun félags um þingframboð eldri borgara á fjölmennum fundi á Hótel Borg í dag. Tillaga var lagð fyrir fundinn til umræðu og síðan samþykkis eða synjunar þess efnis að stofnuð yrðu stjórnmálasamtök sem myndu bjóða fram til Alþingis næsta vor.

Fundurinn stóð fram á kvöld og var að lokum samþykkt ný tillaga um að fresta afgreiðslu þess sem fyrir fundinn var lagt. Kosin var þriggja manna nefnd til að vinna áfram með málið og boðað til fundar í janúar. Í nefndinni eiga sæti þau Arndís Björnsdóttir, Kristján Guðmundsson og Sveinn Guðmundsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×