Erlent

Blair róaði Erdogan

Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna ákváðu á fundi sínum í gær að gera hlé á aðildarviðræðum við Tyrkland en ítrekuðu þó að dyr sambandsins myndu áfram standa nýjum ríkjum opnar. Tony Blair forsætisráðherra Bretlands reyndi í morgun að sefa tyrkneska ráðamenn en þeir eru afar vonsviknir yfir ákvörðuninni.

Tveggja daga leiðtogafundi Evrópusambandsins lauk í Brussel í gær og eins og við var að búast voru aðildarviðræðurnar við Tyrkland efst á baugi. Stjórnvöld í Ankara hafa ekki viljað opna hafnir sínar og flugvelli fyrir umferð frá Kýpur fyrr en búið er að tryggja betur stöðu tyrkneska hluta eyjunnar.

Við þessa afstöðu vildu leiðtogar ESB-ríkjanna hins vegar ekki sætta sig og ákváðu því að hlé yrði gert á flestum þáttum viðræðnanna þar til breyting yrði á. Hvað stöðu annarra ríkja, til dæmis Albaníu og ríkja fyrrum Júgóslavíu, lögðu leiðtogarnir áherslu á að ákvörðunin þýddi ekki að aðildardraumar þeirra væru þar með úti, svo fremi sem þau uppfylltu öll skilyrði um inngöngu. Jose Manuel Barroso, forseti framkæmdastjórnarinnar, bætti því við að gera þyrfti breytingar á stofnunum sambandsins áður en fleiri gætu bæst í hópinn. Tyrkneska ríkisstjórnin hefur lýst yfir vonbrigðum sínum með ákvörðun fundarins í gær.

Tony Blair forsætisráðherra Bretlands er staddur í Tyrklandi og reyndi í morgun að fullvissa Recep Erdogan, forsætisráðherra landsins, um að enn væri litið svo á að innganga Tyrklands í ESB hefði mikla þýðingu fyrir framtíð Evrópu, að minnsta kosti að sínu mati.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×