Innlent

Hald lagt á hafnaboltakylfu og hníf

Lögreglan á Akureyri stöðvaði ökuferð fjögurra ungmenna og er ökumaður grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Auk þess fannst hafnaboltakylfa og svonefndur butterfly hnífur í bílnum, en slíkir hnífar eru stranglega bannaðir hér á landi. Þeir eru hinsvegar algengir í undirheimunum, rétt eins og hafanboltakylfur eru notaðar sem barefli á þeim vettvangi. Lögregla lagði hald á kylfuna og hnífinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×