Erlent

Tutu rannsakar atburðina í Beit Hanoun

Desmond Tutu er mikils metin um heim allan fyrir baráttu sína fyrir jafnrétti kynþátta.
Desmond Tutu er mikils metin um heim allan fyrir baráttu sína fyrir jafnrétti kynþátta. MYND/Reuters

Sameinuðu þjóðirnar hafa skýrt frá því að hinn Suður-afríski fyrrum erkibiskup Desmond Tutu muni stjórna leiðangri til þess að komast að því hvað gerðist í Beit Hanoun þegar 19 óbreyttir borgarar létu lífið í loftskeytaárás Ísraelshers, sem þeir kölluðu síðar "tæknileg mistök".

Tutu mun síðan skila skýrslu um málið til mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna í miðjum desember en nefndin hefur þegar fordæmt árásina og gróf og skipulögð mannréttindabrot Ísraela á Palestínumönnum.

Desmond Tutu fékk friðarverðlaun Nóbels árið 1984 fyrir baráttu sína gegn aðskilnaðarstefnu Suður-Afríku. Hann var þá erkibiskup í Höfðaborg í suður-Afríku. Hann kom meðal annars að stofnun pólitískra samtaka og leiddi friðsamar mótmælagöngur gegn þáverandi einræðisstjórn Þjóðarflokksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×