Innlent

Í hraðakstri með íþróttastúlkur

Lögreglan á Blönduósi hafði í gær afskipti af um 30 ökumönnum fyrir hraðakstur í gegnum umdæmi sitt. Enginn þeirra ók á ofsahraða en einn mældist á 121 kílómetra hraða, sem teldist vart í frásögur færandi, nema af því að með honum í bílnum voru sjö stúlkur á táningsaldri frá íþróttafélagi á Akureyri á leið til keppni suður fyrir heiðar.

Lögreglan hafði samband við forráðamenn íþróttafélagsins sem aftur ræddu málið við forráðamenn stúlknanna. Rétt er þó að taka fram að maðurinn ók stórum bíl og því mátti hann hafa þetta marga farþega.

Lögreglan í Reykjavík handtók 6 ökumenn fyrir ölvunarakstur við reglubundið eftirlit í nótt. Annars var rólegt um að vera í höfuðborginni þó nokkur ölvun hafi verið í miðbænum undir morgun að sögn lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×