Erlent

Mannskæðasta árásin hingað til

Að minnsta kosti 144 týndu lífi í sprengjuárás á fátækrahverfi sjía í Bagdad í dag. Árásin er sú mannskæðasta sem framin hefur verið í landinu frá því að Bandaríkjamenn réðust þar inn.

Hryðjuverkin sem framin voru í Bagdad í dag sýna að varla er hægt að kalla vargöldina í landinu neitt annað en borgarastyrjöld. Sex bifreiðum, sem hver hafði verið hlaðin mörg hundruð kílóum af sprengiefni, var lagt við fjölfarið markaðstorg í Sadr-hverfi höfuðborgarinnar og þær svo sprengdar í loft upp. Öngþveiti og skelfing greip um sig í kjölfarið og þegar fólkið lagði á flótta var sprengjum látið rigna yfir það. Vel á annað hundrað manns liggur í valnum og búist er við að látnum eigi enn eftir að fjölga þar sem margir eru alvarlega særðir. Í Sadr-hverfinu búa fátækir sjíar og því er líklegast að öfgamenn úr röðum súnnía hafi staðið á bak við tilræðið. Þeir eru einnig taldir bera ábyrgð á umsátri um heilbrigðisráðuneyti landsins fyrr í dag en því er stýrt af fylgismönnum sjíaklerksins herskáa Muqtada al-Sadr. Sprengjum af ýmsum stærðum og gerðum var skotið þangað inn en enginn beið þó bana. Bandarískar hersveitir ráku umsátursmennina síðan á brott. Árásin í dag er sú mannskæðasta sem gerð hefur verið í Írak frá innrás Bandaríkjamanna fyrir þremur og hálfu ári og eins og sjá má á umsátrinu um ráðuneytið virðist algert stjórnleysi ríkja þar. Aldrei hafa jafn margir látið lífið í einum mánuði í landinu og í október síðastliðnum og milljónir Íraka hafa flúið heimili sín vegna vargaldarinnar. Þótt erlenda setuliðið sé ennþá skotmark uppreisnarmanna þá er þróunin engu að síður sú að Írakar beina spjótum sínum í æ ríkari mæli hverjir að öðrum án þess að nokkur fái neitt við ráðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×