Innlent

Málflutningur að hefjast gegn olíufélögunum

Málflutningur í fyrsta stóra skaðabótamálinu gagnvart olíufélögunum fer fram eftir tvo daga. Þar er Reykjavíkurborg að krefja félögin um 160 milljónir króna fyrir að svindla á strætó með ólögmætu samráði. Fleiri skaðabótamál eru í farvatninu, meðal annars frá ríkissjóði og Alcan.

Málarekstur sem beinist að olíufélögunum þremur vegna ólögmæts samráðs er þríþættur. Samráðsmálið sjálft er enn í dómskerfinu en þar reyna félögin að hnekkja sektagreiðslum uppá hálfan annan milljarð. Lögreglumál gegn stjórnendum félaganna þriggja er enn hjá saksóknara en ekki er ólíklegt að ákærur verði birtar í byrjun desember. Þriðju málin snúa svo að skaðabótum sem þolendur sámráðsins krefja olíufélögin um.

Það fyrsta stóra er nú á leið í málflutning á miðvikudag en þar er Reykjavíkurborg að krefja félögin um 160 milljónir króna vegna skaða sem Strætó varð fyrir í olíuútboði 1996 - eða fyrir 10 árum. Málið er sérstakt að því leyti að það tengist eina manninum í stjórnendateymi olíufélaganna sem hefur orðið að gjalda fyrir hið meinta ólögmæta samráð - það er borgarstjóranum fyrrverandi, Þórólfi Árnasyni. Hann var markaðsstjóri Essó á þessu samráðsárum og þegar málið kom upp á yfirborðið var honum ekki sætt lengur í borgarstjórastól. Enda ljóst að borgin myndi höfða mál.

Mál borgarinnar gegn Olís, Essó (eða Keri) og Skeljungi er skoðað sem hálfgert fordæmismál. Ríkið er með annað skaðabótamál í biðstöðu. Snýr það að skaða sem hið ólögmæta samráð olli andhelgisgæslunni, Vegagerðinni og lögreglunni. Ælta má að kröfugerð þar kunni að hljóða uppá á annað hundruð milljónir króna. Alcan í Straumsvík hefur enn ekki útilokað dómsmál, einstaka útgerðir og fyrirtæki skoða sína stöðu ásamt öðrum sveitarfélögum en Reykjavík. Einstaklingar eiga erfitt um vik að höfða dómsmál, en þó er eitt slíkt rekið undir handleiðslu Neytendasamtakana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×