Innlent

Nýr skipstjóri á flutningaskipið Vilke

Flutningaskipið Vilke, sem lenti í hrakningum suðaustur af landinu í nokkra daga í síðustu viku uns varðskip fylgdi því til ákvörðunarstaðar á Reyðarfirði, fékk nýjan skipstjóra um borð í gærkvöldi.

Það gerðist austur á Höfn í Hornafirði þegar búið var að lesta skipið þar af sérstakri möl sem flutt verður til Bandaríkjanna. Ekki var hann fyrr kominn um borð en að hvassviðri brast á þannig að ekki var viðlit að sigla út úr ósnum og verður það ekki reynt fyrr en á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×