Innlent

Liggur enn á milli heims og helju í Lundúnum

Íslendingur, sem varð fyrir fólskulegri líkamsárás í London snemma í gærmorgun, liggur enn á milli heims og helju á gjörgæsludeild sjúkrahúss í borginni og hefur ekki komist til meðvitundar. Ráðist var á hann við Arnold Circus í austur hluta borgarinnar. Árásarmennirnir komust undan og er ekki vitað hverjir þeir eru, samkvæmt þeim upplýsingum, sem sendiráð Íslands fékk hjá lögreglunni ytra í morgun. Maðurinn, sem er á bilinu 35 til 40 ára, hefur búið í London í nokkurn tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×