Innlent

Kviknaði í bíl sem var að spóla í ófærðinni

Lögreglan í Kópavogi var kölluð út á sjötta tímanum í gærkvöldi að Nýbýlavegi þar sem logaði í tveimur bifreiðum. Ökumaður annars bílsins var að reyna að aka úr stæði þar sem hann sat fastur og spólaði, neisti myndaðist og við það kviknaði í bílnum. Eldurinn breiddist svo út og náði að komast yfir í næsta bíl. Ökumaður bílsins var fluttur á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahús en fékk að fara heim að lokinni skoðun.



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×