Erlent

Fordæmir ályktun SÞ

Ísraelar fordæma þá ákvörðun Sameinuðu þjóðanna að rannsaka atburðina í Beit Hanoun á Gaza-svæðinu fyrir hálfum mánuði þegar hátt í tuttugu almennir borgarar týndu lífi í loftárás Ísraelshers á íbúðarhús. Ísraelsher hætti við árás á hús á Gaza í morgun þegar mörg hundruð Palestínumenn slógu skjaldborg um það.

Ísraelsher varaði íbúa í húsi í Beit Lahiya á Gaza-svæðinu við árásinni hálftíma áður áætlað var að láta til skarar skríða. Vitað var að Mohammedweil Baroud byggi þar en hann er leiðtogi herskárra Palestínumanna á svæðinu. Íbúi í húsinu sætti sig ekki við þetta og hljóp þegar í nálæga mosku og bað nágranna sína um hjálp. Þeir flykktust að húsinu og slógu skjaldborg um það. Eftir því sem leið á morguninni fjólgaði í hópnum og hættu Ísraelar við árásina.

Ismail Haniyeh, forsætisráðherra í heimastjórn Hamas, lét sig ekki vanta og mætti á vettvang. Hann fagnaði aðgerðum íbúanna. Þetta væri fyrsta skrefið og sama aðferð yrði án efa notuð aftur til að verja hús Palestínumanna. Forsætisráðherrann sagði einnig að Palestínumenn örvæntu vegna þess að Ísraelar létu fordæmingar umheimsins sem vind um eyru þjóta.

Á sama tíma fordæmdi Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, þá ákvörðun Sameinuðu þjóðanna að rannsaka aðdraganda loftárásar Ísraelshers á Beit Hanoun fyrir tæpum hálfum mánuði, sem kostaði vel á annan tug almennra borgara lífið. Olmert sagðist ljóst að það væru ekki Ísraelar sem yrðu að gefa svör vegna mannfalls meðal almennra borgara, sérstaklega ekki eftir að þeir hefðu lýst yfir sorg sinni vegna atburðanna. Réttast væri að þeir sem réðust gegn almennum borgurum dag hvern gæfu skýringar. Enginn væri að predika yfir þeim þegar þörf væri á að Sameinuðu þjóðirnar gerðu það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×