Handbolti

Þýskaland lagði Svía af velli

Heiner Brand er þjálfari þýska landsliðsins í handbolta.
Heiner Brand er þjálfari þýska landsliðsins í handbolta. Getty Images

Þjóðverjar unnu öruggan sigur á Svíum, 30-24, í vináttulandsleik í handbolta sem fram fór í Þýskalandi í dag. Þá höfðu Norðmenn betur gegn Dönum, 26-23.

Christian Zeitz var markahæstur Þjóðverja með fjögur mörk en Markus Baur og Oleg Veleky skoruðu þrjú mörk. Svíar stilltu upp hálfgerðu varaliði í leiknum en markahæstur var Andersson með fimm mörk.

Í heimsbikarmóti kvenna í handbolta tryggðu Rússar og Rúmenar sér sæti í úrslitaleiknum sem fram fer á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×