Innlent

Vodafone þéttir net sitt

Vodafone hefur lokið við uppfærslu á öllum símstöðvum í kerfi sínu, sem fyrirtækið segir að auki bæði þjónustu og öryggi.

Jafnframt þessu hefur Vodafone þétt net sitt með sendum í Öxnadal, Grenivík og á móts við Hrafnagil. Búið er að bæta við þrem sendum á Akureyri og verið að ljúka við uppsetningu á GSM sendi austan Þjórsár. Það er sagt bæta sambandið við þjóðveginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×