Handbolti

Tap hjá Alfreð og Viggó

NordicPhotos/GettyImages

Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar og Viggós Sigurðssonar töpuðu leikjum sínum í Meistaradeildinni í handbolta í dag, en það kom ekki að sök því Flensburg og Gummersbach eru bæði komin áfram í riðlum sínum í keppninni.

Gummersbach tapaði síðari leik sínum gegn Celje Lasko á útivelli 31-29 þar sem Guðjón Valur og Róbert Gunnarsson skoruðu 3 mörk hvor fyrir þýska liðið - sem þó hirti toppsætið í riðlinum.

Sömu sögu er að segja af lærisveinum Viggós Sigurðssonar í Flensburg, en liðið hafði þegar tryggt sér sigur í riðli sínum. Flensburg lá 33-27 fyrir Medvedi frá Rússlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×