Erlent

Írösk liðsforingjaefni gufa upp í Noregi

Þrír írösk liðsforingjaefni sem eru í herþjálfun í Noregi á vegum Atlantshafsbandalagsins virðast hafa gufað upp af yfirborði jarðar. Að sögn norska ríkisútvarpsins hefur ekkert til þeirra spurst síðan í Ósló á mánudaginn en þá höfðu þeir verið í landinu í tvo daga. Leit hefur verið gerð að mönnunum á nálægum hótelum og búið er að lýsa eftir þeim um allt Schengen-svæðið. Ekki er útilokað að einhverjir landar þeirra í Noregi hafi skotið yfir þá skjólshúsi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×