Erlent

Alvarlegt rútuslys í Noregi

Á þriðja tug manna er slasaður, þar af sjö alvarlega, eftir að rúta með um 40 pólskum verkamönnum ók út af þjóðvegi við bæinn Ulsberg í Þrændalögum í Noregi í morgun og valt. Lögregla og slökkvilið höfðu mikinn viðbúnað vegna slyssins og voru þeir sem slösuðust mest fluttir með sjúkraflugi og sjúkrabílum á næstu sjúkrahús en hugað að hinum í nærliggjandi samkomuhúsi. Orsök slyssins er ókunn en mjög hált var á veginum þar sem slysið varð, að sögn lögreglu á staðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×