Erlent

Haukar snúa baki við Bush

Þeim fjölgar með hverjum deginum bandamönnum Bush Bandaríkjaforseta sem ákveða að snúa bakið við honum og hans stefnumálum. Nú síðast eru það tveir helstu haukarnir í hans hópi sem segja vanhæft fólk hafa haldið á spilunum eftir að innrás var gerð í Írak.

Um er að ræða þá Richard Perle, sem var einn nánasti ráðgjafi Donalds Rumsfelds, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Richard Adelman, sem átti sæti í varnarmálanefnd varnarmálaráðuneytisins ásamt Perel, og David Frum, fyrrverandi ræðuhöfund forsetans, en hann skrifaði ræðuna frægu um öxulveldi hins illa, það er Írak, Íran og Norður-Kóreu. Þeir tjá sig í viðtölum við bandaríska tímaritið Vanity Fair sem birt verða í janúarhefti þess sem kemur út í næsta mánuði. Útdrættir úr viðtölunum voru birtir á vefsíðu blaðsins í dag. Sú birting hefur verið gagnrýnd í ljósi þess að þrír dagar eru til þingkosninga í Bandaríkjunum.

Perle og Adelman voru einhverjir helstu stuðningsmenn innrásarinnar í Írak. Þeir segja nú að þeir hefðu aldrei stutt hana hefðu þeir vitað hversu klaufalega yrði staðið að málum eftir að búið væri að steypa Saddam Hússein af stóli.

Talsmaður Hvíta húsið hefur ekki tjáð sig um það sem fram kemur í greininni í dag. Bush Bandaríkjaforseti hefur reynt sitt til að styðja frambjóðendur Repúblíkanaflokksins í þingkosningunum á þriðjudag en margir þeirra hafa afþakkað hjálp hans.

Kannanir benda til þess að demókratar bæti töluvert við sig í báðum þingdeildum og nái jafnvel meirihluta.

Repúblíkanar telja þó margir að dómur sem kveðinn verður upp yfir fyrrverandi Íraksforseta í fyrramálið verði til að styrkja stöðu flokksins á heimavelli. Um er að ræða ákærur vegna fjöldamorða í Dujail fyrir tuttugu og fjórum árum. Öryggisgæsla í helstu borgum Íraks hefur verið hert þar sem stuðningsmenn forsetans fyrrverandi hafa hótað óeirðum verði hann dæmdur til dauða. Réttarhöldum yfir Hússein lýkur þó ekki á morgun því fleiri ákærur á eftir að taka fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×