Erlent

Rolling Stones í jólahlaðborðið

Ef fólk vill fá dálítið auka fútt í jólahlaðborðið, er nú hægt að leigja heimsfræga skemmtikrafta til þess að koma þar fram. Skemmtikrafta eins og Elton John og Rolling Stones. En það er ekki ódýrt.

Sænskt dagblað skýrir frá því, í dag, að það sé orðið talsvert mikið um að frægir skemmtikraftar nái sér í aukaskilding með því að koma fram í einkasamkvæmum. Þannig söng Elton John nýlega í brúðkaupi hjá breskum auðmanni og þáði fyrir eitthundrað milljónir króna.

Einnig er hægt að fá skemmtikrafta eins og Whitney Houston og The Eagles, fyrir dágóðar summur. Á toppnum eru hinsvegar Rolling Stones, en það kostar um 450 milljónir að fá þá í jólahlaðborðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×