Erlent

Kenna stúlkunni sjálfri um hópnauðgun

Gríska eyjahafið
Gríska eyjahafið MYND/Eric Rymer

Fjórir grískir skólapiltar hafa verið ákærðir fyrir að hópnauðga búlgarskri bekkjarsystur sinni. Íbúar þorpsins sem þetta gerðist í, segja að þetta hafi verið stúlkunni að kenna.

Atburðurinn gerðist á eynni Evia sem er norðan við Aþenu. Fyrir rétti skýrði stúlkan frá því að drengirnir fjórir, sem eru 15 til 17 ára gamlir, hafi ráðist á hana á salerni skólans og haldið henni þar í meira en klukkustund meðan þeir skiptust á að nauðga henni.

Þrjár grískar bekkjarsystur þeirra fylgdust með nauðguninni og tóku myndir af henni á farsíma sína. Grikkir eru mjög slegnir yfir þessu ódæði og ekki síður slegnir yfir því að margir þorpsbúar kenna búlgörsku stúlkunni um að þetta skyldi hafa gerst. Hún hafi ögrað piltunum.

Bæjarstórinn á Eviu sagði þannig við fréttamann Reuters; "Heldur þú ekki að drengirnir séu líka í uppnámi yfir þessu ?"

Ekki eru þó allir bæjarbúar þessarar skoðunar. Einn þeirra sagði við fjölmiðla að ef fjórir búlgarskir piltar hefðu nauðgað grískri stúlku, væri búið að drepa þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×