Erlent

Herinn hugsanlega sendur til Napólí

Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu.
Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu. MYND/AP

Stjórnvöld á Ítalíu ræða nú þann mögleika að senda herlið til Napólí til þess stilla til friðar í borginni. Ofbeldisglæpum hefur fjölgað þar á síðastliðnum dögum og vilja ráðamenn grípa í taumana fyrr en síðar.

Minnst fjórir hafa verið myrtir í borginni síðan á laugardaginn, sem er talið óvenju mikið jafnvel fyrir borg sem er þekkt fyrir ofbeldi á götum úti og áhrif mafíunnar. Vopnuðum ránum hefur fjölgað hefur einnig fjölgað. Meðal þeirra myrtu var grunaður mafíósi sem var skotinn í miðborginni í gærkvöldi þar sem hann kom út af knæpu. Sjö voru handteknir vegna málsins í morgun.

Ítölsk stjórnvöld ræða nú þann mögleika að senda hermenn til borgarinnar. Romano Prodi, forsætisráðherra, segir vandann ærinn, og það á fleiri stöðum en í Napólí.

Ráðamenn á Ítalíu hafa áður gripið til þess ráðs að siga hernum á Mafíuna eða til að bregðast við auknu ofbeldi á tilteknum svæðum, þar á meðal í Napólí.

Hermenn voru sendir til Sikileyjar árið 1992 þegar Mafían myrti tvo helstu saksóknarana í Palermo. Þeir höfðu þá höggvið nokkuð skarð í skipulagða glæpastarfsemi og höfðu því uppskorið hatur þeirra sem síst skyldi. Hermenn voru á eyjunni í sex ár.

Hermenn eru látnir gæta opinberra bygginga til þess að losa lögreglumenn undan þeim verkefnum svo þeir geti frekar barist gegn skipulagðri glæpastarfsemi.

Ekki hafa þó öll ódæðin í Napólí síðustu daga tengst skipulagðri glæpastarfsemi. Eitt fórnarlambið var ræningi sem féll fyrir hendi eiganda tóbaksverslunar sem hann var að ræna. Á svipuðum tíma stakk 16 ára unglingur annan 18 ára til bana þar sem þeir slógustu um hylli ungrar stúlku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×