Erlent

Spánverjar reyna að stemma stigu við flóttamönnum frá Afríku

Dómsmálaráðherra Spánar, Lopez Aguilar, sagði í morgun eftir fundahald í Senegal, að Afríkuríki yrðu að reyna að stemma stigu við fjölda flóttamanna sem reyna að komast til Evrópu.

Hann bætti þó við að þessi ríki þyrftu ekki einungis efnahagsaðstoð til þess að standa sig betur heldur væri nauðsynlegt að koma á fót samstarfi í þjálfun obinberra starfsmann og við endurbætur á dómskerfinu. Taldi hann einnig nauðsynlegt að huga að löndunum Gíneu-Bissá og Malí sem ættu í miklum vandræðum í þessum málefnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×