Erlent

Lula da Silva ber sigur úr býtum í forsetakosningunum í Brasilíu

Hundruðir stuðningsmanna Lula da Silva fagna sigri hans í forsetakosningunum.
Hundruðir stuðningsmanna Lula da Silva fagna sigri hans í forsetakosningunum. MYND/AP

Brasilíski forsetinn Lula da Silva vann sigur í forsetakosningum sem fram fóru um helgina. Þegar búið er að telja 99 prósent atkvæða hefur da Silva verið lýstur sigurvegari með um 61 prósent atkvæða.

Da Silva vann þar sigur á Geraldo Alckmin en eftir kosningarnar sagði Alckmin vonast til þess að da Silva myndi standa sig vel. Í fyrstu umferð kosninganna sakaði Alckmin da Silva um víðtæka spillingu og atkvæðakaup en í annarri umferð kosninganna bar da Silva, sem er fæddur í fátækrahverfum, sigur af hólmi vegna mikils stuðnings fátækra í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×