Erlent

Brennuvargar hvattir til að gefa sig fram

Móðir eins slökkviliðsmannsins sem fórst í skógar- og kjarreldunum í Suður-Kaliforníu um helgina hvetur þá sem kveiktu eldana til að gefa sig fram við lögreglu. Fjórir slökkviliðsmenn týndu lífi í eldunum og einn liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi.

Lögreglu í Kaliforníu grunar að eldarnir hafi verið kveiktir og býður verðlaunafé fyrir upplýsingar sem leitt geti til handtöku. Eldarnir loga nú á 160 ferkílómetra svæði og gengur slökkvistarfið nú betur þar sem vinda lægði síðdegis í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×