Erlent

Hefndum hótað

Talibanar saka herlið Atlantshafsbandalagsins í Afganistan um þjóðarmorð og hóta grimmilegum hefndum vegna loftárása á saklausa hirðingja í vikunni. Íbúar svæðisins fullyrða að í það minnsta fimmtíu hafi beðið bana í loftárásinni. Talsmenn NATO vilja hins vegar ekki staðfesta að fleiri en tólf borgarar hafi látist og segja að um slys hafi verið að ræða. Á sama tíma heldur reiði Afgana áfram að magnast eftir að myndir birtust af sex þýskum friðargæsluliðum með hauskúpu að leik. Tveir þeirra hafa verið leystir frá störfum en hinum hefur ekki verið refsað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×