Erlent

Múslimaklerkur í Ástralíu í predikunarbann

Múslimaklerkurinn Shjeik Taj Aldin al Hilali sagði að konur sem væru ekki með slæðu væru eins og kjötstykki sem gleymst hefði að breiða yfir og að ekki ætti að áfellast þá sem narta aðeins í.
Múslimaklerkurinn Shjeik Taj Aldin al Hilali sagði að konur sem væru ekki með slæðu væru eins og kjötstykki sem gleymst hefði að breiða yfir og að ekki ætti að áfellast þá sem narta aðeins í. MYND/AP

Forsætisráðherra Ástralíu, John Howard, sagði í morgun að ummæli eins áhrifamesta klerks múslima varðandi konur, gætu haft veruleg áhrif á samskipti við þarlenda múslima.

Ummælin voru á þá leið að konur sem ekki notuðu slæður væru að bjóða hættunni á nauðgun heim. Klerkurinn hefur beðið konur afsökunar á ummælum sínum en hyggst ekki segja af sér. Æðsta ráð múslima í Ástralíu hefur bannað klerkinum að predika næstu þrjá mánuði. Samskipti milli múslima og annarra Ástrala hafa verið stirð allt síðan í desember á síðasta ári eftir ítrekuð slagsmál milli hópa innfæddra unglinga annars vegar, og araba hins vegar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×