Erlent

Svartur og hvítur

Reynst getur erfitt að þekkja í sundur tvíbura, sérstaklega ef þeir eru eineggja. Tvíburarnir sem Kerry Richardsson, frá Middlesbro á Englandi, eignaðist fyrir þrettán vikum eru hins vegar eins og svart og hvítt, í bókstaflegri merkingu.

Skýringin á því að annar drengurinn er dökkur á hörund en hinn svo ljós er að Kerry er hálfnígerísk og eiginmaður hennar er enskur. Læknar segja að líkurnar á að litaraft tvíbura sé svo ólíkt séu einn á móti milljón.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×