Erlent

Rútslys í Pakistan

12 týndu lífi og 60 særðust þegar rúta skall á bíl í Suður-Pakistan. Áreksturinn var svo harður að rútan og bíllinn köstuðust í nærliggjandi gil. Slysið varð nærri bænum Rohri, um 360 kílómetra norð-austur af hafnarborginni Karachi.

Rútan var að fara nokkuð krappa beygju þegar skall aftan á bílnum. Bæði rútan og bíllinn hröpuðu niður í 15 metra djúpt gilið. 7 þeirra sem slösuðust eru í lífshættu.

Umferðaslys eru tíð í Pakistan þar sem ástand vega er mjög slæmt, bílum illa haldið við og aksturlag margra ekki upp á marga fiskana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×