Erlent

Tsjad segir uppreisnarmenn koma frá Súdan

Stjórnvöld í Tsjad sögðu í morgun að uppreisnarmenn sem hefðu gert árás á bæi í suðausturhluta Tsjad hefðu komið frá nágrannaríki þeirra Súdan. "Síðastliðinn sunnudag hóf hópur af vopnuðum ævintýramönnum frá Súdan aðgerðir sem miða að því að valda óstöðugleika í Tsjad" sagði í yfirlýsingu frá samskiptaráðherra landsins. "Alþjóðasamfélagið verður að skilja að Tsjad er fórnarlamb óskammfeilinna árása sem koma frá súdönsku landsvæði og eru gerðar með háþróuðum vopnum".




Fleiri fréttir

Sjá meira


×