Erlent

Skólarúta valt á Spáni

10 börn slösuðust, þar af 2 alvarlega, þegar skólarúta valt í Zaragoza-héraði á norðaustur Spáni í dag. 50 börn voru um borð í rútunni þegar slysið varð. Rútan valt á aðrein á akbraut nærri bænum Villamayor.

Annað barnið sem slasaðist alvarlega mjaðmabrotnaði en hitt fótbrotnaði. Að sögn lækna er líðan þeirra stöðug. Börnin sem voru í rútunni eru öll 12 ára eða eldri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×