Erlent

34 ára aldursmunur

Gina Lollobrigida og Javier Rigau í samkvæmdi í Monaco fyrir rúmum 2 árum.
Gina Lollobrigida og Javier Rigau í samkvæmdi í Monaco fyrir rúmum 2 árum. MYND/AP

Ítalska kvikmyndaleikkonan Gina Lollobrigida, sem eitt sinn var sögð fallegasta kona í heimi, ætlar að ganga að eiga mann sem er 34 árum yngri en hún. Lollobrigida, sem er 79 ára, segir í viðtali við spænska glanstímaritið Hola að hún ætli að ganga að eiga spænska kaupsýslumanninn Javier Rigau, sem er 45 ára. Hún kynntist honum í samkvæmi í Monte Carlo árið 1984 og hafa þau hittst á laun síðan þá, eða í 22 ár.

Lollobrigida segir að hún hafi alltaf verið veik fyrir yngri mönnum því þeir gefi svo mikið af sér og séu lausir við geðflækjur. Hún segir Javier ástríðufullan eins og allir Spánverjar séu.

Lollobrigida skildi við fyrri eiginmann sinn, júgóslavneska lækninn Milko Skofic, árið 1971 eftir 22 ára hjónaband. Þau eignuðust einn son. Hún hefur ekki gifst aftur. Lollobrigida ætlar að þessu sinni að gifta sig í kirkju en segist ekki ætla að klæðast hvítu.

Lollobrigida lék í fjölmörgum kvikmyndum á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar og var á þeim tíma einn helsti keppinautur Sophiu Loren um titilinn "fallegasta kona Ítalíu".

Síðla á sjötta áratugnum sneri hún sér að fréttaljósmyndun og náði töluverðum frama í þeim geira. Hún helgaði sig þá einnig öðrum áhugamálum.

Á tíunda áratugnum sneri hún sér aftur að kvikmyndaleik um stund og lék þá í nokkrum smærri myndum. Árið 1999 bauð hún sig fram til Evrópuþingsins en náði ekki kjöri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×