Erlent

4 bandarískir hermenn í Írak til viðbótar dregnir fyrir herrétt

Fjórir Bandarískir hermenn í Írak verða dregnir fyrir herrétt, ákærðir fyrir morð á þremur Írökum sem grunaðir voru um að taka þátt í andspyrnu gegn fjölþjóðlegu herliði í landinu. Hermennirnir réðust á búðir andspyrnumanna nærri Thar Thar fljoti suð-vestur af borginni Tíkrit í maí á þessu ári. Þar voru mennirnir handteknir og síðan myrtir.

Hermennirnir eiga ekki yfir höfði sér dauðadóm verði þeir sakfelldir. Þeir segja mennina hafa reynt að flýja og þeir því skotið þá. Saksóknari segir mennina hafa verið látna lausa áður en þeir hafi verið eltir uppi og skotnir.

Fyrr í dag var tilkynnt að aðrir fjórir hermenn yrðu dregnir fyrir herrétt, ákærðir fyrir að hafa nauðgað og myrt unga, íraska stúlku og einnig myrt fjölskyldu hennar. Tveir þeirra eiga yfir höfði sér dauðadóm verði þeir sakfelldir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×