Erlent

Segir súdönsku ríkisstjórnina styðja vígahóp

MYND/AP

Fyrrverandi meðlimur vígahópsins Janjaweed sem herjar á íbúa Darfur-héraðs í Súdan, segir súdönsku ríkisstjórnina ekki einungis styrkja vígahópinn um vopn og skotfæri heldur einnig gefa þeim skipanir um hvar og hvenær eigi að ráðast á óbreytta borgara. Maðurinn sagði þetta í viðtali á BBC í gær en hann hefur sótt um pólitískt hæli í Bretlandi. Ríkisstjórn Súdans hefur hingað til neitað öllum ásökunum um tengsl við Janjaweed-hópinn en hefur hins vegar ekki staðið við loforð um að afvopna hópinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×