Erlent

Gæti þurft að láta helming eigna sinna af hendi við skilnað

Rússneski auðkýfingurinn, Roman Abramovich, gæti þurft að láta eiginkonu sína Irinu fá helming eigna sinna í skilnaðarmáli sem sagt er vera í uppsiglingu.

Breska blaðið News of the World birti fréttir þessa efnis á sunnudaginn og sagði ástæðu skilnaðarins vera framhjáhald Abramovich. Talsmenn hans hafa hins vegar vísað fréttunum á bug. Auðæfi Abramovich eru metin á tólf hundruð milljarða íslenskra króna en hann efnaðist á olíu- og málmvinnslu. Líklega er hann þó þekktastur fyrir að eiga enska knattspyrnuliðið Chelsea.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×