Lífið

Kerrang! safndiskurinn fæst á Íslandi

Sign spilar í Fjölbrautarskólanum á Selfossi í kvöld og í Yello í Keflavík á þriðijudagskvöldið. Þá kemur hljómsveitin fram á Kerrang! kvöldinu á Iceland Airwaves föstudagskvöldið 20. október klukkan 22.15.
Sign spilar í Fjölbrautarskólanum á Selfossi í kvöld og í Yello í Keflavík á þriðijudagskvöldið. Þá kemur hljómsveitin fram á Kerrang! kvöldinu á Iceland Airwaves föstudagskvöldið 20. október klukkan 22.15.

"New Breed" er tvöfaldur safndiskur sem gefin er út á vegum Gut Records í Bretlandi í samstarfi við Kerrang!. Lagaval var í höndum ritstjórnar Kerrang! og A&R fólks hjá Gut. Útgáfan verður fáanlegur í mjög takmörkuðu upplagi á tónleikum Sign og Kerrang! kvöldi Airwaves hátíðarinnar, en Sign liðar framsöluðu lagi sínu, A Little Bit, á diskinn. "New Breed" er einungis gefinn út í Bretlandi en Sign hefur fengið leyfi til að selja útgáfuna á tónleikum hjá sér. Diskurinn er gefinn út í tilefni af 25 ára afmæli Kerrang! Á honum eru að finna lög eftir þær sveitir sem mest hefur kveðið að á undanförnum misserum. Þar á meðal eru Planet! At the Disco, Bullet For My Valentine og Aiden. Í nýlegri frétt í Kerrang! er þess getið að jafnframt sé safndiskunum ætlað að varpa ljósi á þær hljómsveitir sem Kerrang! hefur trú á að eigi eftir að brjótast í gegn á næstu 12 mánuðum bæði bresk og alþjóðleg. Í síðarnefnda flokknum eru hljómsveitirnar Sign, Gojiri og Scare sérstaklega nefnd til sögunnar.

Sign standa um þessar mundir fyrir mjög vel heppnaðri tónleikaröð um landið og koma til með að hafa 50 eintök af "New Breed" disknum. Þeir sem vilja tryggja sér eintak af þessum safngrip þurfa því að hafa skjótar hendur.

Sign spilar í Fjölbrautarskólanum á Selfossi í kvöld og í Yello í Keflavík á þriðijudagskvöldið. Þá kemur hljómsveitin fram á Kerrang! kvöldinu á Iceland Airwaves föstudagskvöldið 20. október klukkan 22.15. Þess má geta að franska hljómsveitin Gojiri sem einnig á lag á disknum spilar strax á eftir Sign á Nasa á föstudaginn en sveitirnar deildu sviði á bresku tónlistarhátíðinni, Great Escape, sl. vor.

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.